Frumgreinadeild + háskólaíbúðir.

Ég verð nú bara að viðurkenna það að ég er afskaplega ánægð með þetta framtak og viðtökur okkar við þessari braut! Þetta er eitthvað sem hefur vantað og vona bara að þetta gangi sem best.

 

Einnig finnst mér háskólaíbúðirnar alger snilld! :D þó svo ég sé ekki sjálf að fara að nota þær... 


mbl.is Fleiri sækja um en komast að í frumgreinadeild Keilis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hjálpið þið sem getið.

16. júlí 2007 23:07

Banaslys á Akrafjallsvegi

Ökumaður bifhjóls lést eftir árekstur við strætisvagn á Akrafjallsvegi við Akranes í kvöld. Maðurinn var á fertugsaldri. Slysið varð á gatnamótum Akrafjallsvegar og Innnesvegar og var Akrafjallsvegur lokaður fram eftir kvöldi vegna slyssins. Hann lét eftir sig konu og tvö börn.

------------------------------------------------------------------------ 

** þau eru 7 mánaða og tæplega 2 ára**

Stofnaður hefur verið reikningur í Landsbankanum á Akranesi til styrktar þeim.

Reikningsnúmerið er : 0186-15-380076 og kennitalan er 020775-3009

Kannski er þetta óviðeigandi hér en mig langaði að leyfa öllum að eiga kost á því að hjálpa þeim.


Blaðburðarstúlka.

Á hverjum degi, er ég geng um götur miðborgarinnar í morgunsárið til að bera út Morgunblaðið, er heilabú mitt á fullri ferð. Þegar þögnin er algjör og eina sem heyrist er vindurinn og fuglasöngurinn þá getur maður ekki annað gert en skemmt sér með sínum eigin hugsunum. Ég á það til að velta því fyrir mér hvers konar fólk búi í húsunum sem ég er að bera út í eða hugsa út í það hvað hafi gerst á þessum stað í fortíðinni, í gær, í síðustu viku eða jafnvel bara fyrir hundrað árum. 

Þar sem ég var, nú fyrir stuttu, að fjárfesta í minni eigin íbúð hafa hugsanir mínar meira dregist út í byggingarlist og skipulagi lóða og annars sem tengist fasteignum. Þar sem ég er að bera út í 101 eru húsin þar mörg hver orðin mjög gömul, lang flest yfir 100 ára gömul og þau eru svo falleg. Það er einhver stíll yfir þeim, einhver dulúðlegur blær og leyndardómur yfir þessu.. og það finnst mér spennandi :)

Á svona tímum skjótast líka fjölmargar hugmyndir að frábærum pistlum sem ég gæti skrifað inn á þetta blessaða blogg mitt en aldrei virðast þær hugmyndir halda sér þegar komið er fyrir framan tölvuna. Enda er maður þá oftast farinn í það að skoða bloggfærslur hjá öðrum eða spjalla við fólk á MSN.

En að sjálfsögðu ætla ég að reyna að bæta mig í þessu (eins og svo mörgu öðru) því það er alltaf gott að eiga hugsanir sínar skrifaðar niður, því þær getur verið skemmtilegt að skoða síðar og eru þær alls ekkert verra afþreyingarefni en margt annað.

 

En nóg komið að blaðri um mínar stórskemmtilegu hugsanir. Ég hef þetta ekki lengra að sinni en hvet þess í stað alla sem eiga sér leið hjá að skilja eftir sig spor. Tel að það verði ófáir sem kíkja við á síðuna mína næsta sólarhringinn þar sem ég var þeirrar lukku aðnjótandi að lenda í "blog.is" á blaðsíðu 8 í sunnudagsmogganum. (og þar sem ég er að bera hann út þá er ég þegar komin með hann í hendurnar:)) 

 

Gangið hægt um gleðinnar dyr í kvöld. 


Skondin bilun

Sjálf er ég ekki mikill Harry Potter aðdáandi, ég las fyrstu bókina einhverntíman fyrir svona 5 árum og fannst hún góð og minnist þess svo að hafa séð brot úr fyrstu myndinni einhverntíman fyrir sirka jafn löngu síðan en ég hef aldrei dottið inn í þetta. Mér fannst þetta skemmtilegur lestur og vel skrifað en svosem ekkert fyrir mig.

 

Bilunin sem ég gekk fram á niðri í miðbæ í gærkvöldi var mér þá algerlega óskiljanleg. Ég rölti framhjá þremur bókabúðum og biðraðirnar sem safnast höfðu við þær allar voru ógurlegar! Mörg hundruð metra raðir fyrir framan allar þrjár búðirnar, 2 öryggisverðir sem stóðu við sitthvora hlið hurðarinnar hleyptu fólki inn í skömmtum með því að draga frá svart tjald sem hengt hafði verið fyrir framan dyrnar, sennilega til að skapa einhvern dulúðuglegan blæ og stemmingu. Það eina sem vantaði þarna var rauður dregill, það hefði algerlega fullkomnað myndina

 

Þetta fannst mér ótrúlegt og satt best að segja hefði mér aldrei órað fyrir því að slíkt myndi gerast, en ekki er öll geðveikin eins og fynst mér þetta bara skondið!

 

Go Harry Potter fans!..

 

Veit annars einhver hvernig bókin endar? Er hann drepinn eins og maður hefur heyrt? 


mbl.is Ævintýrum Harry Potters lýkur í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nota þetta eitthvað??

Ég er búin að eiga þetta blogg í næstum ár en ekki ennþá notað það neitt af viti.. hendi einhverju gáfulegu hérna inn from time to time.. og þá aðallega einhverju sem ég finn á mbl.is

 

:)

 

Enjoy! 


hrhrhrhr

Moi

bara athuga hvort þetta virkar...? 


Fyrsta bloggfærsla

Þetta er nýja myndabloggið mitt. Þar sem það er ekki hægt að hafa myndir á folk.is blogginu ætla ég bara að setja myndirnar hérna inn og þá er hægt að skoða þær hérna. Bloggið heldur samt áfram að vera á gamla www.folk.is/girly86 blogginu mínu. Enjoy! =)


Um mig

Hrafnhildur Ýr Benediktsdóttir
Hrafnhildur Ýr Benediktsdóttir
Ung, fersk og........ Þýsk?

Vinir

Eldri færslur

2007

2006

Nýjustu myndir

  • Stúdent finally!!
  • Daniel & ég
  • Ralf yndi!
  • Anne 18 ára!
  • Afmælisgjöf Ali =)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 915

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband