Skondin bilun

Sjálf er ég ekki mikill Harry Potter aðdáandi, ég las fyrstu bókina einhverntíman fyrir svona 5 árum og fannst hún góð og minnist þess svo að hafa séð brot úr fyrstu myndinni einhverntíman fyrir sirka jafn löngu síðan en ég hef aldrei dottið inn í þetta. Mér fannst þetta skemmtilegur lestur og vel skrifað en svosem ekkert fyrir mig.

 

Bilunin sem ég gekk fram á niðri í miðbæ í gærkvöldi var mér þá algerlega óskiljanleg. Ég rölti framhjá þremur bókabúðum og biðraðirnar sem safnast höfðu við þær allar voru ógurlegar! Mörg hundruð metra raðir fyrir framan allar þrjár búðirnar, 2 öryggisverðir sem stóðu við sitthvora hlið hurðarinnar hleyptu fólki inn í skömmtum með því að draga frá svart tjald sem hengt hafði verið fyrir framan dyrnar, sennilega til að skapa einhvern dulúðuglegan blæ og stemmingu. Það eina sem vantaði þarna var rauður dregill, það hefði algerlega fullkomnað myndina

 

Þetta fannst mér ótrúlegt og satt best að segja hefði mér aldrei órað fyrir því að slíkt myndi gerast, en ekki er öll geðveikin eins og fynst mér þetta bara skondið!

 

Go Harry Potter fans!..

 

Veit annars einhver hvernig bókin endar? Er hann drepinn eins og maður hefur heyrt? 


mbl.is Ævintýrum Harry Potters lýkur í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ráðlegg yður að lesa grenargerð mína um Potter á bloggsíðu minni.

Virðingarfyllst,

Jóhannes Ragnarsson, 21.7.2007 kl. 09:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um mig

Hrafnhildur Ýr Benediktsdóttir
Hrafnhildur Ýr Benediktsdóttir
Ung, fersk og........ Þýsk?

Vinir

Eldri færslur

2007

2006

Nýjustu myndir

  • Stúdent finally!!
  • Daniel & ég
  • Ralf yndi!
  • Anne 18 ára!
  • Afmælisgjöf Ali =)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 915

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband